GKS

1 / 3

VELKOMIN Í SÝNINGARSAL OKKAR Í SÍÐUMÚLA 4

2 / 3

Úrval innréttinga fyrir baðherbergið þitt!

Sjá nánar
3 / 3

Eldhúsið

Sjá nánar

Innréttingar fyrir okkur öll

Hjá GKS Innréttingum finnur þú fjölbreytt úrval innréttinga sem henta öllum heimilum, skrifstofum eða stofnunum. Við bjóðum vandaðar og hagkvæmar lausnir í öll rými! Hjá GKS Innréttingum finnur þú allt sem þig dreymir um! GKS – fyrir okkur öll.

GKS Innréttingar – Sérsniðnar lausnir fyrir öll rými og öll verðbil

Hvort sem þú ert að innrétta heimili, skrifstofu eða opinbert rými, finnur þú áreiðanlegar og faglegar lausnir hjá GKS Innréttingum. Við bjóðum innréttingar í öllum verðflokkum – frá hagkvæmum lausnum til hágæða sérsmíði – og sjáum einnig um uppsetningu. Í okkar öflugu trésmiðju vinnum við með fullkomin framleiðslutæki og reynslumikið starfsfólk sem tryggir gæði, nákvæmni og skilvirkni í hverju verkefni. Veldu GKS þegar þú vilt innréttingar sem standast tímans tönn – með lausnadrifinni þjónustu sem tekur mið af þínum þörfum og fjárhagsramma. Sérsmíði, þjónusta og lausnir fyrir öll heimili og fyrirtæki.

Sjá nánar

Vefverslun

Skrefin að nýrri innréttingu

Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almennt verkferli hjá okkur þegar stefnt er að slíkri framkvæmd.

01Taka málin

Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd og hæð veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.

02Bóka fund

Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggt á upplýsingunum frá þér.

03Förum yfir málin

Við skoðum með þér teikningarnar og lögum að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.

04Sækir eða færð sent

Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálfar eða færð sent heim að dyrum.

05Við erum til að í græja allt

Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.

Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.

Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið